Lava Stone sagan 
Á föstudaginn fyrir viku síðan skelltum við Hafdís okkur á
djammið saman, hittumst svo lítið nebblega að við ákváðum að djamma
saman 
Ég kíkti fyrst heim til hennar og við sátum þar og drukkum,
spjölluðum og horfðum á tónlistarmyndbönd.
Svo var skellt sér í bæinn, fórum fyrst á Hressó og þar voru
eitthverjir gaurar frá Noregi sem gripu í Hafdísi og byrjuðu að
spjalla við hana, við spjölluðum við þá í smá stund og ákváðum svo
að fara með þeim á Oliver, röltum upp Laugarveginn með þeim og vá
ég held við höfum aldrei hlegið jafn mikið !!
Eina sem kom uppúr þeim allan tíman sem við spjölluðum við þá var
Lava Stone, hole in one og the chees with the holes in it...... það
komu eitthver orð þarna á milli en við náum þeim ekkert, við hlógum
svo mikið í hvert sinn sem þeir sögðu Lava Stone 
Þeir ætluðu svo að segja okkur betur frá þessu öllu saman inná
Oliver !!
Þegar við vorum komin þangað hurfu gaurarnir bara alltí einu,
við höfum kannski bara ekki verið nógu skemmtilegar fyrir þá þar
sem við vorum ekki inní þessum Lava Stone umræðum þeirra.... ??
Þannig við ákváðum að skella okkur bara á Sólon, settumst niður
þar og eitthver gaur kom og settist hjá okkur, hann hélt reyndar að
við værum tvíburar !! Vissi ekki til þess að við værum svona
líkar... kannski maður verði líkur á að hanga saman í lítilli kompu
allan daginn 
En svo þegar hann áttaði sig á því að við hefðum engan áhuga á
honum þá var hann alveg með það á hreinu að við hlytum að vera bara
lesbíur 
Við fórum svo bara snemma heim, eða um 4 leitið, komum við á
Hlölla og fengum okkur að borða 
Þetta var geggjað skemmtilegt djamm, held þetta sé samt svona
had to be there húmor því fólk er ekki að skilja þennan Lava Stone
húmor okkar 
Samt á eitthvern undarlegan hátt er alltaf að birtast Lava Stone
í bílnum mínum... veit ekki alveg hvernig, virðist einsog eitthver
fái lyklana mína lánaða í vinnunni og setji lava stone í bílinn,
veit samt ekki hver það gæti verið 
Á laugardaginn var svo farið á djammið með Sólu, fórum á Hressó,
surprice surprice.... Það var þvílíkt fjör, held ég hafi aldrei
fengið jafn mikla athygli á einu kvöldi !!
Við fórum líka bara snemma heim og komum líka við á Hlölla 
Á sunnudaginn kom Siggi svo í heimsókn til mín og var hérna
alveg framá föstudag, alltaf gaman að fá gesti 
Ég og Sóla skelltum okkur svo á Glaumbar á fimmtudaginn með Sigga
og vini hans, það var geggjað gaman, fórum svo á Hverfis, hef
einusinni komið þangað inn áður 
Svo þegar lokaði fékk eitthver þá hugmynd að grilla !!
Skuttluðum Sólu heim og ég, siggi og vinur hans fórum heim að
grilla !!! held að grillmatur sé alltaf bestur þegar maður grillar
hann á fáránlegum tíma 
Hinn gaurinn fór svo heim fljótlega eftir matinn og við fórum að
horfa á Friends 
Á föstudaginn skrapp ég svo niðrí bæ um tíu leitið og sat þar
með eitthverjum í smá stund að spjalla, fór svo heim fyrir
miðnætti. Þá ákváðum við Snjólaug að lita á mér hárið þannig núna
er ég með geggjað fínt hár 
Á laugardagskvöldið hitti ég svo Heiðu, fórum á kaffihús og
rúntuðum og spjölluðum helling, geggjað stuð 
Annars er ég bara búin að vera að vinna alla helgina og núna
lygg ég andvaka uppí rúmi þar sem ég sofnaði kl 18:30 í kvöld þegar
ég kom heim út vinnunni og vaknaði aftur kl 1, var búin að sofa í 6
1/2 tíma þá og það er ca jafn mikið ef ekki meira en ég sef
venjulega á nóttunni !!
Er að huxa um að reyna að fara að sofa aftur, svo ég verði nú
ekki nýsofnuð þegar ég þarf að vakna afur 